Flýtilyklar
Náttúruverndarsamtök mótmæla aðför að níu-menningunum úr Gálgahrauni
Náttúruverndarsamtök mótmæla aðför að níu-menningunum úr Gálgahrauni
Fimmtudaginn 11. september kl. 9.00 hefjast vitnaleiðslur í Héraðsdómi Reykjaness í sakamáli sem Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur höfðað gegn níu einstaklingum sem andæfðu náttúruspjöllum Garðabæjar og Vegagerðar ríkisins í Gálgahrauni. Níumenningarnir eru hluti mun stærra hóps sem mótmælti vegalagningu nýs Álftanesvegar í Gálgahrauni sem var að mati margra bæði ónauðsynlegur og ólöglegur.
Þann 21. október á síðasta ári, á sama tíma og krafa stærstu umhverfissamtaka landsins um ógildingu framkvæmdaleyfis var fyrir dómstólum, lét lögregla höfuðborgarsvæðisins til skarar skríða gegn friðsömum mótmælendum. Yfir 60 lögreglumenn vopnaðir gasi og kylfum stóðu vörð um jarðýtu sem ruddist í gegnum hraunið og handtók á þriðja tug friðsamra mótmælenda sem voru fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Margir þeirra þurftu að dúsa í einangrunarklefum tímum saman. Nokkru síðar voru níu manns ákærðir af lögreglu höfuðborgarsvæðisins fyrir að óhlýðnast lögreglu. Lögmenn níumenninganna hafa farið fram á það að kæran verði felld niður. Á það hefur ekki verið fallist og því ljóst að stjórnvöld ætla að taka hart á þeim sem bera hag náttúru Íslands fyrir brjósti.
Náttúruverndarsamtökin á Íslandi mótmæla þessari aðför lögreglu að saklausu fólki sem vildi vernda fallega náttúruperlu og krefjast þess að stjórnvöld láti nú málið niður falla.
Jafnframt hvetja þau alla þá sem láta sér annt um náttúru Íslands og frelsið til að mótmæla athöfnum stjórnvalda til að mæta í Héraðsdóm Reykjaness í Hafnarfirði kl. 9.00 á fimmtudaginn til stuðnings níu-menningunum.