Flýtilyklar
Gálgahraunstónleikar
Gálgahraunstónleikar
Miðvikudagskvöldið 29. október kl. 20 30 verða haldnir tónleikar í Háskólabíó til styrktar níumenningunum sem á dögunum fengu dóm í Gálgahraunsmálinu.
Hverjum hinna dæmdu var gert að greiða 100.000 kr í sekt auk 150.000 kr í málskostnað.
Tilgangur tónleikanna er að safna fé sem afhent verður níumenningunum og jafnframt að sýna baráttu þeirra samstöðu með tónlist og gleði.
Tónlistarfólkið sem kemur fram á tónleikunum gefur allt vinnu sína en það eru:
Hljómsveitin Spaðar
Uni Stefson
AmabAdamA
Snorri Helgasson
Ojbarasta
KK
Dikta
Jónas Sig
Pétur Ben
Prins Póló
Hallveig Rúnarsdóttir óperusöngkona
Bubbi Morthens
Allar nánari upplýsingar veitir Bubbi Morthens í síma 896 4666 og á bubbi@bubbi.is
Það sem vert er að vita:
Dagsetning: Miðvikudagur 29. október 2014
Tímasetning: kl. 20:30
Staðsetning: Háskólabíó við Hagatorg
Hús opnar: kl. 19:30
Miðasala: http://midi.is/tonleikar/1/8580# og við innganginn
Miðaverð: 2.900 kr