Samþykkt á aðalfundi 14. apríl 2007 – breytt á aðalfundi 15. mars 2008

I. kafli. Félagið.

1.gr. Félagið heitir Framtíðarlandið.

2.gr. Markmið félagsins er að stuðla að því að hugvit, frumkvæði og sköpunargleði fái að njóta sín til þess að byggja upp mannvænt samfélag og fjölbreytt atvinnulíf á Íslandi í sátt við náttúruna og þjóðir heimsins. Félagið starfar sem þverpólitísk hugmyndaveita og þrýstiafl og vill styðja stjórnvöld til góðra verka.

3.gr. Félagið er opið öllum sem aðhyllast markmið þess.

II. kafli. Stjórn.

4.gr. Stjórn skal skipuð fimm félagsmönnum og fjórum til vara. Skulu þeir kjörnir á aðalfundi til eins árs.

5.gr. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum. Skipaður skal formaður, varaformaður, ritari og gjaldkeri.

6.gr. Stjórn fer með ákvörðunarvald félagsins milli aðalfunda. Hún hefur umboð til að álykta í nafni félagsins sé ályktunin í samræmi við markmið þess, gildi og mótaða stefnu. Stjórn er bundin af samþykktum aðalfundar. Stjórn skal setja sér skriflegar starfsreglur.

7.gr. Stjórnarfundur telst gildur ef að lágmarki þrír stjórnarmenn eða varamenn þeirra sitja fund. Þó skulu meiriháttar ákvarðanir teknar af fullskipaðri stjórn.

8.gr. Stjórn félagsins er heimilt að stofna til nefnda eða vinnuhópa eins og hún telur tilefni til og getur hún falið slíkum hópum að vinna að ákveðnum málum eða haft sér til fulltingis og ráðgjafar.

9.gr. Stjórn er skylt að boða til almenns félagsfundar krefjist að lágmarki 35 félagar þess og skal boðað til fundar með sama hætti og til aðalfundar.

III. kafli. Fjármál.

10.gr. Starf félagsins er fjármagnað með félagsgjöldum og framlögum styrktaraðila. Engar skuldbindingar sem varða stefnu, markmið eða áherslur félagsins mega fylgja slíkum fjárframlögum.

11.gr. Styrktar- og samstarfssamningar skulu lagðir fyrir stjórn til samþykktar. Meirihluta stjórnar þarf til að skuldbinda félagið fjárhagslega.

12.gr. Reikningsár félagsins er almanaksárið.

IV. kafli. Aðalfundur.

13.gr. Aðalfundur félagsins skal haldinn ár hvert fyrir 1. apríl.

14.gr. Allir skráðir félagar hafa rétt til setu og atkvæðisrétt á aðalfundi.

15.gr. Aðalfundur telst löglega boðaður ef hann er tryggilega boðaður með tveggja vikna fyrirvara. Heimilt er að boða aðalfund með tölvupósti á póstlista félagsins og auglýsingu í fjölmiðli á landsvísu.

16.gr. Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:

* Fundur settur.
* Kosning fundarstjóra og fundarritara.
* Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
* Reikningar félagsins lagðir fram og samþykktir.
* Lagabreytingar.
* Kosning í stjórn.
* Kosning á skoðunarmanni reikninga.
* Ákvörðun félagsgjalda.
* Önnur mál.
* Fundarslit.

Þó skal heimilt að víkja frá ofangreindri dagskrá mæli sérstakar ástæður til þess og skal þá aðalfundur samþykkja dagskrártillögu þess efnis í upphafi fundar.

17.gr. Fráfarandi stjórn skal gera tillögu að nýrri stjórn eftir að hafa fengið tillögur frá félagsmönnum. Hverjum kjörgengum félagsmanni er heimilt að bjóða sig fram til stjórnar. Framboð skal tilkynna skriflega að lágmarki fimm dögum fyrir aðalfund. Kjörgengir eru allir skráðir félagsmenn, sem ekki gegna trúnaðarstörfum fyrir stjórnmálaflokka.

18.gr. Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi félagsins. Tillögur um lagabreytingar skal leggja fram til stjórnar a.m.k. fimm dögum fyrir aðalfund. Lagabreytingar teljast samþykktar ef 2/3 hluti félaga sem sækja aðalfund samþykkja breytingarnar.

V. kafli. Félagsslit.

19.gr. Félaginu má slíta með ákvörðun 2/3 hluta félaga sem sækja fund á tveimur aðalfundum eða félagsfundum, sem boðað er til með sama hætti og til aðalfundar.

20.gr. Við slit félagsins skulu eignir, ef einhverjar eru, renna til náttúruverndar á Íslandi.