Framtíðarlandið tekur þátt í ýmsum verkefnum en allt frá stofnun árið 2006 hefur það unnið sem upplýsingaveita með ótal fyrirlestrum, fræðslu- og umræðufundum, kvikmyndasýningum og með því að bjóða til landsins heimsþekktum leiðtogum á ýmsum sviðum til að víkka út sjóndeildarhringinn. Auk þess hefur Framtíðarlandið verið í nánu samstarfi við önnur grasrótarsamtök og oft tekið höndum saman við þau um auglýsingaherferðir, undirskriftasafnanir og stórar samkomur. Einnig hefur félagið unnið ítarlegar skýrslur um atvinnulíf, orkumál og hagfræði í tengslum við stóriðju.