Blásið til Náttúruverndarþings

Blásið til Náttúruverndarþings

Náttúruverndarþing 2012 verður haldið laugardaginn 28. apríl n.k. í Háskólanum í Reykjavík (stofu M-101) frá kl. 10-16:30.

Dagskrá:

10:00   Setning Náttúruverndarþings

10:10   Verndun og orkunýting landssvæða: næstu skref
Friðrik Dagur Arnarson, landfræðingur og fulltrúi náttúruverndarhreyfingarinnar í rammaáætlun 2
Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari og stjórnarmaður í Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands

11:15   Málstofur og vinnuhópar
Málstofa 1: Náttúruvernd og ferðaþjónusta
Innlegg: Arnar Már Ólafsson, markaðsstjóri hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum
Málstofustjórar: Rannveig Ólafsdóttir, dósent í ferðamálafræði og Anna G. Sverrisdóttir, stjórnarkona í Landvernd

Málstofa 2: Náttúruvernd og lýðræði
Innlegg: Kristinn Már Ársælsson, félagsfræðingur og stjórnarmaður í Öldu
Málstofustjóri: Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar

Málstofa 3: Náttúruvernd, friðlönd og þjóðgarðar
Innlegg: Helga Ögmundardóttir, mannfræðingur
Málstofustjóri: Einar Þorleifsson, náttúrulandfræðingur

12:45   Hádegisverður í Nauthóli

13:40   Afhending Náttúruverndarans, viðurkenningar fyrir ötula náttúruverndarbaráttu á Íslandi

13:50   Skipulag og samstarf náttúruverndarfélaga
Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur
Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistar- og leiðsögukona
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur

14:45   Ályktanir vinnuhópa

15:45   Kaffi

16:05   Kosning um ályktanir

16:20   Kosning í undirbúningsnefnd næsta þings

16:25   Þingslit

20:00   Náttúruverndarball með skemmtidagskrá á efri hæð Kaffi Sólon (Bankastræti 7a) frá kl. 20:00. Aðgangur ókeypis.

Þingforsetar: Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri og Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki

?

Verð á hádegismat er 1.990,-. Vinsamlegast skráið ykkur í mat fyrir 25. apríl á netfangið: skraning@landvernd.is.

Matseðill: Grilluð kjúklingabringa með mús úr sætum kartöflum, sítrónu- og spínatsósu og kryddjurtasalati með ristuðum hnetum og fræjum. Kaffi og konfektmoli á eftir. Vinsamlegast látið vita ef óskir eru um grænmetisfæði.

 

Nánar um málstofur

Náttúruvernd og ferðaþjónusta
Erlendir ferðamenn voru rúmlega 560 þúsund árið 2011 og hefur árlega fjölgað að jafnaði um 5,3% á síðustu 10 árum. Sé miðað við áframhaldandi fjölgun með sama hraða verða hér um 900 þúsund erlendir ferðamenn árið 2020. Hvernig eru Íslendingar í stakk búin að taka á móti svo mörgu fólki án þess að það bitni á náttúrugæðum? Hvaða leiðir eru færar til að tryggja vernd sérstæðra svæða, sérlega á hálendi Íslands? Hvaða stefnu vilja umhverfis- og náttúruverndarsamtök taka í þessum málum? Málstofan mun leita svara við þessum spurningum og fleirum.

Náttúruvernd og lýðræði
Aðkoma almennings að ákvörðunum um umhverfismál, náttúruvernd og stórframkvæmdir er lítil hér á landi. Með hvaða hætti er hægt að auka vald almennings á þessu sviði? Veita sveitarstjórnarlög og skipulagslög almenningi nægileg áhrif? Hafa sveitarstjórnir of mikil völd á kostnað heildarhagsmuna í skipulags- og náttúruverndarmálum? Á almenningur að geta knúið fram íbúakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur um umdeild mál? Málstofan mun leita svara við þessum spurningum og fleirum.

Náttúruvernd, friðlönd og þjóðgarðar
Hvernig virkjum við betur hreyfingu náttúruverndarfélaga í hugmyndaríkri og framsækinni náttúruvernd?

  • til öflugri náttúruverndar með alvöru friðlöndum
  • fleiri þjóðgörðum
  • meiri endurheimt náttúrugæða með virku eftirliti áhugafólks um náttúruvernd með friðun og friðlöndum
  • alvöru eftirfylgni með skuldbindingum við alþjóðasáttmála í umhverfis- og náttúruvernd heima fyrir og á víðari grundvelli í umhverfi hnattrænna umhverfisvandamála.

Svæði

  • Facebook
  • Vimeo
  • Soundcloud
  • RSS
moya