Flýtilyklar
Shell viðurkenni, borgi og hreinsi
Shell viðurkenni, borgi og hreinsi
Hádegisfyrirlestur 18. maí 2012. Nígeríski mannréttindafrömuðurinn David Vareba fjallar um áhrif olíumengunar Shell á mannréttindi íbúa óseyra Nígerfljóts.
Föstudaginn 18. maí flytur David Vareba hádegisfyrirlestur í Háskóla Íslands, Öskju stofu 131. Fyrirlesturinn hefst kl. 12 og stendur til kl. 13.
David Vareba er mannréttindafrömuður, menntaður í heimspeki. Hann fæddist í Bodó í Ogonílandi í Nígeríu árið 1978 og þekkir vel þær raunir sem íbúar á svæðinu hafa mátt þola vegna umhverfisspjalla og mannréttindabrota olíurisans Shell. David starfar fyrir samtök í Nígeríu sem nefnast, Miðstöð umhverfismála, mannréttinda og þróunar (The Center for Enviroment, Human rights and Developements) sem m.a. hafa unnið með Amnesty International að rannsókn á olíulekum sem urðu í Bodó í Ogonílandi árið 2008 og áhrifum þeirra á mannréttindi fólks á svæðinu. David Vareba vinnur með íbúum á óseyrum Nígerfljóts sem orðið hafa fyrir umhverfisspjöllum vegna olíuleka, upplýsir þá um rétt þeirra til þátttöku í málefnum sem varða þá beint og friðsamar leiðir til að mótmæla mannréttindabrotum og umhverfisspjöllum. Hann starfaði með breska lögfræðifyrirtækinu Leight/Day and Co. sem stýrir málsókn gegn Shell vegna olíulekanna í Bodó.
Í fyrirlestrinum greinir David Vareba frá áhrifum olíumengunar Shell á lífsviðurværi og mannréttindi íbúa á óseyrum Nígerfljóts, hvernig stórfyrirtæki eins og Shell bregðast ábyrgðarskyldu sinni þegar kemur að verndun mannréttinda, og hvernig umhverfisspjöllin hafa komið einna verst niður á konum.
David Vareba er gestur Íslandsdeildar Amnesty International sem stendur að fyrirlestrinum í samvinnu við Framtíðarlandið, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Verkfræði- og Náttúruvísindasvið Háskóla Íslands.
Til nánari glöggvunar
Árið 1956 hóf stórfyrirtækið Shell fyrst að vinna olíu á óseyrum Nígerfljóts í Nígeríu en 95% af útflutningstekjum landsins byggja á olíu- og gasvinnslu. Þrátt fyrir að olíuvinnsla Shell í Nígeríu hafi skilað ríkinu auknum tekjum lifa 70% almennra borgara undir fátæktarmörkum.
Gífurleg olíumengun og umhverfisspjöll hafa hlotist af starfsemi Shell sem hefur alvarleg heilsuspillandi áhrif á íbúanna og ógnar lífsviðurværi þeirra, þar á meðal fiskveiði og landbúnaði. Jarðvegur, vatn og andrúmsloft er mengað vegna olíuiðnaðar og réttur íbúa á svæðinu til mannsæmandi lífs er fótum troðinn. Afleiðingarnar eru aukin fátækt og örbirgð.
Árið 2008 hlaust gífurleg mengun af tveimur stórum olíulekum í Bodó í Ogonihéraði. Shell brást þeirri ábyrgðarskyldu sinni að stöðva lekann tafarlaust. Olíulekarnir voru ekki stöðvaðir fyrr en að mörgum vikum liðnum og rúmum þremur árum síðar hafði Shell ekki sinnt því að hreinsa olíumengunina á svæðinu. Olíulekarnir í Bodó eru aðeins eitt af þúsundum dæma um leka af völdum olíuvinnslu á svæðinu.
Í ágúst 2011 komst Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna að þeirri niðurstöðu að Shell hefði árum saman brugðist þeirri skyldu sinni að hreinsa olíumengun í Ogonihéraði. Að mati stofnunarinnar mun það taka 25 ár að endurbæta svæðið sökum þess hve alvarleg mengunin er. Olíupípur liggja ennþá víða um landið og olíulekar eru tíðir og alvarlegir. Umhverfisstofnun SÞ hefur lagt til að stjórnvöld í Nígeríu stofni sérstakan sjóð sem nýttur verði til að hefja hreinsun í Bodó í Ogonihéraði. Lagt er til að Shell greiði í upphafi 1 milljarð Bandaríkjadala í sjóðinn.
Rétturinn til heilsusamlegs umhverfis eru mannréttindi og Amnesty International krefst þess að olíufyrirtækið Shell geri hreint fyrir sínum dyrum og viðurkenni neikvæð áhrif olíumengunar á mannréttindi íbúa á óseyrum Nígerfljóts. Samtökin krefjast þess jafnframt að olíumenguð svæði verði hreinsuð að fullu, samfélög hljóti bætur fyrir skaða af völdum olíumengunar, lögboðið og reglubundið mat á áhrifum olíuvinnslu á mannréttindi íbúa fari fram, og að þeir hafi fullan aðgang að upplýsingum um áhrifin á umhverfi sitt og mannréttindi.
www.netakall.is
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Bjarnadóttir herferðafulltrúi Íslandsdeildar Amnesty International bb@amnesty.is sími 5117900.