Trölladyngja

Krýsuvíkursvæði

- Trölladyngja

HS Orka hefur haft áform um að reisa orkuver á jarðhitasvæðinu í Trölladyngju. Rannsóknir hafa þegar valdið miklu raski á viðkvæmu svæðinu, meðal annars er að finna 3000 m² borplan skammt neðan við Spákonuvatn. Enn er óljóst hvort jarðhitinn verði virkjaður.

Mynd © Ellert Grétarsson

AÐALATRIÐI UM SVÆÐIÐ

  • Utan jarðhitasvæðanna er rennandi vatn á yfirborði nánast óþekkt í Reykjanesfjallgarði vestan Hellisheiðar.
  • Óháðar athuganir benda til að samanlögð vinnslugeta svæðanna sé um 120 MW til 50 ára en álbræðsla í Helguvík þarf 435 MW.
  • Virkjunarhugmyndirnar eru ekki taldar sjálfbærar og útlit fyrir að orkan úr svæðunum klárist á fáeinum áratugum.
  • Rúmlega 60% landsmanna búa í nánd við óspillta náttúru Krýsuvíkursvæðisins og Reykjanesskagans.
  • Þrjár jarðhitaholur hafa verið boraðar á svæðinu, ein þeirra er í hrauninu sunnan við Höskuldarvelli og önnur í mynni Soga.
  • Rannsóknir hafa leitt af sér miklar skemmdir á náttúru svæðisins.
  • Svæðið er að stærstum hluta innan Reykjanesfólkvangs og að nokkru leyti á náttúruminjaskrá.

Í deiglunni

Svæði

  • Facebook
  • Vimeo
  • Soundcloud
  • RSS
moya