Ef hugmyndir um Bláfellsvirkjun ganga eftir myndi rennsli Gullfoss minnka verulega þar sem virkjunin á að vera fyrir ofan fossinn. Einnig yrðu jarðminjar og vatnafar á svæðinu fyrir miklu raski og landslag breytast töluvert.
Flýtilyklar
Bláfellsvirkjun

Hvítá í Árnessýslu
- Bláfellsvirkjun
- Sjá á korti
- Sjá ljósmynd
- Verndarflokkur
-
Hvítá og Jökulkvísl í Árnessýslu
Í Hvítá og Jökulkvísl (Jökulfalli) í Árnessýslu eru hugmyndir um sex virkjanir, en þær eru Búðartunguvirkjun, Haukholtsvirkjun, Vörðufellsvirkjun og Hestvatnsvirkjun sem falla í biðflokk, og Gýgjarfossvirkjun og Bláfellsvirkjun sem falla í verndarflokk. Tvær síðasttöldu virkjunarhugmyndirnar eru hvað umdeildastar þar sem þær yrðu myndaðar ofan við Gullfoss og gætu haft mikil áhrif á rennsli hans.
Fjöldi náttúruminja er á vatnasviði Hvítár, meðal annars Hvítárvatn og Hvítárnes, Hvítárgljúfur, Pollengi, Tunguey og Höfðaflatir. Friðlýstar minjar eru Þórarinsstaðir, Laugahvammur, Búðarárbakki og Tjarnarrústin.
Í náttúruverndaráætlun 2004-2008 lagði Umhverfisstofnun fram tillögur að friðlýsingu Hvítárvatns, Hvítárness og Karlsdráttar og Brúarár, Skálholtstungu og Höfðaflata. Skálholtstunga og Höfðaflatir eru lítt röskuð votlendi við Hvítá. Pollengi og Tunguey eru votlendi og eru þau afar mikilvæg fyrir fugla og gróðurfar, en flest votlendissvæði Suðurlands eru mikið röskuð eða alveg framræst.
Nauðsynlegt er talið að halda einnig vatnasviði Hvítár neðan Gullfoss óvirkjuðu (Haukholt, Vörðufell, Hestvatn og Selfoss), meðal annars vegna margra mikilvægra fuglasvæða sem tengjast Hvítá, til dæmis ósasvæði Ölfusár. Að auki er áin notuð til flúðasiglinga. Einnig gæti virkjun við Selfoss haft áhrif á fiskgengd í Hvítá og gríðarstórt vatnasvið hennar.
-
Umhverfi
Hvítá í Árnessýslu er jökulá sem á uppruna sinn í Langjökli.
Áin Sogið rennur saman við Hvítá við Öndverðanes og myndar Ölfusá. Samanlögð lengd Hvítár frá upptökum til ósa Ölfussár er 185 km sem gerir hana að þriðju lengstu á landsins.
Hvítá rennur í Gullfoss og Hvítárgljúfur sem bæði eru friðlönd. Einnig er austurbakki Hvítárgljúfurs, Hvítárvatn, Hvítárnes og Fróðarárdalir á Náttúruminjaskrá og rústir eyðbýlisins á Hvítárnesi á Fornminjaskrá.
-
Virkjunarhugmyndir
Hugmyndir hafa verið um að virkja Hvítá við Lambafell norðaustan við Bláfell á Kili, skammt neðan ármóta Hvítár og Jökulkvíslar (Jökulfalls). Bláfellsvirkjun ætti að vera 76 MW að afli en virkjun myndi hafa áhrif á jarðminjar og vatnafar á svæðinu og einnig myndi landslag verða fyrir áhrifum. Rennsli Gullfoss myndi minnka.
AÐALATRIÐI UM SVÆÐIÐ
- Ef af virkjun yrði myndi rennsli Gullfoss minnka verulega.
- Jarðminjar og vatnafar á svæðinu yrðu fyrir miklu raski og landslag myndi breytast töluvert.
- Fjöldi náttúruminja er á vatnasviði Hvítár.
- Í Náttúruverndaráætlun 2004-2008 lagði Umhverfisstofnun fram tillögur að friðlýsingu Hvítárvatns.
- Nauðsynlegt er talið að halda vatnasviði Hvítár neðan Gullfoss óvirkjuðu, m.a. vegna margra mikilvægra fuglasvæða sem tengjast Hvítá.