Verjum Krýsuvík!

Verjum Krýsuvík!

Fræðslu- og gönguferðir í Krýsuvík á Uppstigningardag

Á morgun fimmtudag, Uppstigningardag,  mun náttúruverndarhreyfingin bjóða alla náttúruunnendur velkomna til Krýsuvíkur til viðburðar undir heitinu Verjum Krýsuvík!

Boðið verður upp á nokkrar léttar og fræðandi gönguferðir um svæðið. Geta þátttakendur valið þá göngu sem þeir vilja eða farið í allar göngurnar  sem leiddar verða af staðkunnugum jarðfræðingum. Leitast verður við að svara spurningum um náttúru og sögu þess merkilega náttúru- og útivistarsvæðis sem Krýsuvík er. Af hverju er Grænavatn svona grænt? Af hverju eru hverasvæðin svona litrík? Hvað er svona merkilegt við jarðfræði Krýsuvíkur? Hvaða áhrif munu fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir hafa á svæðið?

Boðið verður upp á ókeypis sætaferðir með Kynnisferðum frá BSÍ kl. 10:15. Rútan mun einnig stoppa við N1 í Hafnarfirði kl. 10:30. Þeir sem ætla á einkabílum eru hvattir til að sameinast í bíla við N1 í Hafnarfirði kl. 10:30.

Dagskrá hefst í Seltúni kl. 11:00.

1. Hverasvæðið í Seltúni  kl. 11:00
Gengið um litríkt hverasvæðið og fyrirbrigði þess skoðuð í fylgd jarðfræðinga. Seltún hafnaði í orkunýtingarflokki í rammaáætlun.
2. Sveifluháls ? Pínir kl. 11:30
Gengið verður upp að hvernum Píni ofan við Seltún. Örlítið ofar á hálsinum fæst gott útsýni yfir fyrirhugað virkjanasvæði og næsta umhverfi.
3. Grænavatn ? Austurengjahver kl. 12:15 ? 13:30.
Frá hinu iðagræna Grænavatni og upp í Austurengjar er stutt en gefandi ganga. Austurengjahver var settur í biðflokk í rammaáætlun.

Að viðburðinum standa Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands, Náttúruvaktin, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Framtíðarlandið, Fuglavernd og fleiri náttúruverndarsamtök.

 

Nánari upplýsingar um virkjunarhugmyndirnar fjórar á Krýsuvíkursvæðinu má finna á Náttúrukorti Framtíðarlandsins:

Sandfell  ?  Sveifluháls  ?  Austurengjar  ?  Trölladyngja

Svæði

  • Facebook
  • Vimeo
  • Soundcloud
  • RSS