Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði
Framtíðarlandið vill vera vettvangur frjórra hugmynda um virkjun mannauðs og hugmyndaríkra einstaklinga. Félagið vill jákvæða, skapandi atvinnustefnu í mannvænu, vistvænu, og lýðræðislegu andrúmslofti; kvikan og frjóan jarðveg þar sem frumkvöðlar og sprotafyrirtæki dafna, þar sem snjallar viðskiptahugmyndir fá að njóta sín og þar sem einstaklingurinn og samfélagið er skapandi. Framtíðarlandið vill standa vörð um náttúru landsins og víðerni.

Við trúum því jafnframt að með því að snúa blaðinu við geti Íslendingar skipað sér í röð þeirra þjóða sem ná bestum árangri í umhverfisvernd. Það samrýmist sterkri ímynd vörumerkisins Íslands og í því felast fjölmargir möguleikar.
Share/Save/Bookmark