Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 12. mars 2007

Heimilisbílinn stærsta umhverfisákvörðunin
sigurduringi
Bílafloti Íslendinga þykir með eindæmum veglegur og eru vandfundnir þeir staðir í heiminum þar sem bílafjöldinn er meiri á hvern einstakling eða vélastærð og eyðsla meiri á hvern bíl. Á síðustu þremur árum hefur aukningin í eldsneytisnotkun orðið sérstaklega mikil, í takt við þenslu í samfélaginu. Á Akureyri hefur um rúmlega eins árs skeið starfað merk stofnun sem ber heitið Orkusetur. Hlutverk Orkuseturs er að stuðla að aukinni vitund um skilvirka orkunotkun og möguleika til orkusparnaðar, og fylgir þar með ákveðinni fyrirmynd slíkra stofnana innan Evrópusambandsins. Sigurður Ingi Friðleifsson umhverfisfræðingur er framkvæmdastjóri Orkuseturs og Framtíðarlandið fékk að spyrja hann nánar um hvernig Íslendingar geta valið sér heimilisbifreið á umhverfisvænni forsendum.

Sívaxandi mengun frá bílaflotanum

Útblástur á koltvísýringi vegna eldsneytisnotkun samganga fer sívaxandi, en á sama tíma hafa framleiðendur bifreiða tekið að leita umhverfisvænna leiða við að knýja þær. Íslendingar eiga því möguleika á að minnka töluvert eldsneytisnoktun bílaflota síns með því einu að velja réttu bifreiðina. Sigurður Ingi segir aukna eldsneytisnotkun bílaflotans ekki aðeins stafa af auknum fjölda bíla heldur einnig af stækkun meðalbílsins, og bætir við að Íslendingar þurfi að gera sér grein fyrir að val á bifreið skipti höfuðmáli: „Bifreið sem er keypt ný til landsins dvelur að meðaltali hér í ein níu ár og samanlagður útblástur þessara ára er afleiðing af þeirri ákvörðun sem í upphafi var tekin. Sem dæmi má nefna að ef valinn er bensínbíll í stað samskonar dísilbíls getur munurinn verið um 6 tonn af koltvísýringi á líftíma bifreiðarinnar miðað við 15.000 km akstur á ári. Þessi einfalda ákvörðun sem tekin er á örstundu í bílaumboðinu getur því í raun vegið yfir sex þúsund kíló.“

„Bílafloti okkar er örugglega einn eyðslumesti bílafloti heims miðað við höfðatölu“ segir Sigurður Ingi, en hann telur það mikið skref fram á við í umhverfismálum takist okkur að hliðra bílaflotanum í umhverfisvænni átt: „Við erum geysilega mikil bílaþjóð. Allt skipulag miðast mikið við bílaflotann, samanber t.d. þéttleika bensínstöðva. Ég held að við getum náð miklum árangri með því að koma af stað bylgju lítilla breytinga hjá stórum hópi, frekar en að krefjast strax mjög mikilla breytinga.“

01_oliunotkun

Olíunotkun bifreiða og tækja á íbúa

Samanburður bílategunda auðveldur

Eitt markmið Orkuseturs er að gera upplýsingar aðgengilegar almenningi og „hjálpa honum að hjálpar sér sjálfur“ líkt og Sigurður Ingi orðar það. Í þeim tilgangi hafa verið settar upp á heimsíðu Orkuseturs reiknivélar sem gera bílakaupandanum kleift að bera mjög nákvæmlega saman eldsneytiskostnað og koltvísýringsútblástur ólíkra bílategunda. Óhætt er að mæla eindregið með þessum reiknivélum enda eru þær einstaklega notendavænar og aðgengilegar.
Sigurður Ingi bendir á að strangt aðhald muni vera framundan í þessum málum, því Evrópusambandið hefur sett sér það takmark fyrir árið 2012 að losun koltvísýrings bifreiða verði að hámarki 130 grömm á kílómetra. Einfaldur samanburður á þremur tegundum bíla sem nú eru á markaði leiðir í ljós hve vel þeir standa sig í að ná því marki. Umhverfisvænustu kostirnir í vali á heimilisbíl eru svokallaðir ‘hybrid’ eða ‘tvinn’ bílar, en í þeim eru tvær vélar, önnur bensínknúin og hin rafmagnsknúin, og næst-umhverfisvænsti kosturinn er svo díselbíll.

02_bilategundir

Samanburður þriggja algengra fólksbílategunda eftir mengun

Rafmagnsbílar framtíðin

Orkusetur beinir einnig sjónum að ýmsum framtíðarmöguleikum í umhverfisvænum tegundum eldsneytis. Sigurður segir rafmagnið lang besta möguleikann í því sambandi: „Hér á landi getur rafmagnið verið sérstaklega góður kostur því verðið mun halda áfram að vera tiltölulega ódýrt og hækka mun hægar en í löndunum í kring. Besta lausnin er sú að rafmagnið verði notað beint og milliliðalaust.“
Aðrir möguleikar sem til greina koma eru metan, lífdísel og etanól. Rúmlega 50 metanbifreiðar eru þegar í umferð hér á landi, og þar af ein í einkaeigu. Metan er gas úr lífrænum úrgangi sem safnað er saman og myndi annars sleppa út í andrúmsloftið. Lífdísel er svo einfaldlega díselolía sem unnin er úr lífrænum hráefnum, svo sem plöntum og fitu, en lífdíselolíu má blanda við aðra díselolíu eða setja beint á díselbíla. Etanólframleiðsla er skammt komin hér á landi en lengra komin annars staðar, t.a.m. í Svíþjóð – en fyrstu skrefin í rannsóknum á notkun lúpínu og grasi til framleiðslu á etanóli hafa farið fram á vegum Íslenska lífmassafélagsins.

Bílnum stungið í samband yfir nótt

Sigurður Ingi ítrekar þó að af innlendu orkugjöfunum væri rafmagn lang hentugast. Enn eru þó stórir þröskuldar, á borð við óhagkvæmni í meðferð rafhlaðna. Sem stendur kunna möguleikarnir enn að vera mestir í svokölluðum ‘tengil-tvinnbílum’ en það eru tvinnbílar sem hægt er að stinga í samband við rafmagn og hlaða. Slíkir bílar minnka eldsneytiseyðsluna enn meira en aðrir tvinnbílar, enda hafa þeir stærri rafhlöðu og innstungu fyrir utanaðkomandi rafmagn.
Miðað við toppa og lægðir í raforkunotkun íslenskra heimila segir Sigurður Ingi að uppsett raforkunet landsmanna ætti auðveldlega að geta tekið við talsverðum fjölda tengiltvinnbíla, sem hlaðnir yrðu á næturna.

Að lokum segir Sigurður Ingi að möguleikarnir sem nú bjóðast í umhverfisvænni eldsneytisnotkun einkabílsins séu ekkert endilega tómur ‘lúxus’: „Þegar allt er tekið saman þarf t.d. tvinnbíll og seinna tengiltvinnbíll ekki að vera svo dýr kostur. Ég hvet bílakaupendur til að hugsa dæmið til enda og skoða hversu mikið þeir geta sparað með slíkum bíl yfir lengra tímabil þegar sparneytnin er tekin inn í. Svo mun niðurfelling á vörugjöldum vonandi koma til með að lækka verðið umhverfisvænustu bifreiðunum sem brátt verða í sölu hér á landi.“

Heimasíða Orkuseturs
Share/Save/Bookmark