Framtíðarlandið – fréttatilkynning
Framtíðarlandið- félag áhugafólks um framtíð Íslands hélt sinn fjórða aðalfund 27.maí síðastliðinn.
Framtíðarlandið er þverpólitískt þrýstiafl og hugmyndaveita sem styður stjórnvöld, atvinnulífið og stofnanir til að móta framsýnt samfélag í sátt við náttúru landsins. Félagar eru 3000 talsins og byggir starfið á víðtækri þátttöku frumkvöðla, fræðimanna, listamanna og einstaklinga af öllum sviðum atvinnulífsins.
Félagið, sem var stofnað 17. júní 2006, hefur meðal annars staðið fyrir þingum, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni, undir yfirskriftinni „Ísland á teikniborðinu“ þar sem kallað var eftir framtíðarsýn og skapandi atvinnustefnu.
Í þessum anda átti Framtíðarlandið þátt í því að skapa vettvang til umræðu um framtíð Íslands með Þjóðfundi í lok síðasta árs þar sem 1500 manns, þverskurður af þjóðfélaginu, komu saman til að ræða á hvaða gildum og stoðum við viljum byggja samfélagið.
Þá réðst Framtíðarlandið í það mikilvæga verkefni að gera aðgengilegt á netinu kort af Íslandi sem gefur yfirsýn yfir þau svæði sem fyrirhugað er að nýta til orkuframleiðslu eða raska á annan hátt vegna stóriðjuáforma á Íslandi. Auk ljósmynda af hverju svæði fyrir sig eru veittar ítarlegar náttúrufarsupplýsingar, sjá: www.natturukortid.is
Í nýkjörinni stjórn sitja:
Andri Snær Magnason, rithöfundur
Birkir Björnsson, gagnagrunnssérfræðingur
Irma Erlingsdóttir, forstöðukona rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við HÍ
María Ellingsen, leikari og leikstjóri
Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlista- og leiðsögukona
Pétur Bragason, verkfræðingur
Sigrún Þorgeirsdóttir, viðskiptafræðingur
Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki við HÍ
Þröstur Sverrisson, umhverfissagnfræðingur
Með félaginu starfar einnig öflugt sérfræðingaráð.
16. júní næstkomandi kl.12:00 stendur félagið fyrir afmælisfundi í hádeginu í Þjóðmenningarhúsinu. Allir sem áhuga hafa á starfsemi félagsins, félagar og aðrir, eru hvattir til að mæta, fá sér súpu og leggja fram sínar hugmyndir fyrir næsta starfsár á teikniborðið.