Opinn fundur - stóriðjan: ríkisstyrkt atvinnugrein?
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 10. júní 2007
Stóriðjan: ríkisstyrkt atvinnugrein?
morgunfundur Framtíðarlandsins nk. miðvikudag
Atvinnulífshópur Framtíðarlandsins tók fyrr á árinu saman skýrslu um byggingu Kárahnjúkavirkjunar og álvers í Reyðarfirði. Þar er þeirri spurningu svarað hvort framkvæmdirnar hafi verið réttar og skynsamlegar miðað við arðsemi, umhverfiskostnað, lýðræði, byggðasjónarmið og hagstjórn.
Framtíðarlandið efnir til kynningar á skýrslunni og pallborðsumræðna um innihald hennar næstkomandi miðvikudag. Jafnframt má búast við líflegum umræðum um arðsemi þeirra framkvæmda sem nú standa fyrir dyrum.
Staður: Norræna húsið
Tími: Miðvikudagur 13. júní. Húsið opnar 08:00, dagskrá hefst 08:30 og lýkur 09:30
Þátttakendur í pallborði verða:
* Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra
* Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur
* Stefán Pétursson, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar
* Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans
Umræðum stjórnar Hafliði Helgason, blaðamaður.
Skýrsluna má nálgast á heimasíðu Framtíðarlandsins, hér
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!