Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 08. maí 2007

Græn framtíð: Stórtónleikar 11. maí!

Framtíðarlandið blæs í alla herlúðra daginn fyrir kosningar og býður þjóðinni til tónleika á Nasa við Austurvöll undir yfirskriftinni GRÆN FRAMTÍÐ? Niðurstöður kosninganna munu ráða miklu um framtíðarmöguleika græns Íslands og Framtíðarlandið vill með tónleikunum hvetja alla þá sem unna náttúru Íslands og vilja fjölbreytt atvinnulíf að haga atkvæði sínu eftir því.

Tónleikarnir marka jafnframt lok átaks Framtíðarlandsins í tengslum við Sáttmála um framtíð Íslands .
Á tónleikunum kemur fram einvalalið íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita, en þær eru:

* Benni Hemm Hemm
* Bogomil Font & Flís
* Sprengjuhöllin
* Mr. Silla & Mongoose
* Retro Stefson
* Hjaltalín
* Bob Justman
* DJ Musician

Dagskrá tónleikanna hefst klukkan 21.00 og stendur langt fram eftir nóttu. Húsið opnar 20.00.

Aðgangseyrir er enginn en aldurstakmark er 18 ár.

graen_framtid

Share/Save/Bookmark