Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 06. maí 2007

Á hverju byggist hagvöxtur framtíðarinnar?

Síðustu ár hafa miklar deilur staðið um stóriðjustefnu íslenskra stjórnvalda, ekki aðeins vegna náttúrufórna heldur einnig vegna umdeilds hagræns ávinnings þeirra. Hafa aðrar atvinnugreinar sem ekki leggja síður af mörkum til hagvaxtar liðið fyrir stóriðjustefnuna? Er áframhaldandi stóriðjustefna ábatasöm fyrir hagvöxt á Íslandi til langs tíma litið, í samanburði við aðra möguleika í atvinnuuppbyggingu? Framtíðarlandið býður til pallborðsumræðna á morgunverðarfundi nú á þriðjudaginn um þessar spurningar.

Staður: Hótel Loftleiðir, Þingsalur 1

Tími: Þriðjudagur 8. maí. Opnað verður fyrir morgunverð frá klukkan 08:00 en umræður hefjast klukkan 08:30 og verður lokið klukkan 09:30.

Þátttakendur í pallborði verða:
* Árni Mathiesen fjármálaráðherra
* Ásgeir Jónsson hagfræðingur greiningardeildar Kaupþings
* Hildur Jónsdóttir landfræðingur og ferðamálafrömuður
* Magnús Ingi Óskarsson frumkvöðull hjá Calidris
* Sjöfn Sigurgísladóttir framkvæmdastjóri Matís

Umræðum stjórnar Sigmundur Ernir Rúnarsson sjónvarpsmaður

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Morgunverður fyrir fjölmiðlafólk í boði Framtíðarlandsins!

Nánari upplýsingar:
* Pétur Óskarsson, stjórnarmaður í Framtíðarlandinu / gsm 897 5488 / Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Share/Save/Bookmark