Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 7. nóvember 2007

Í tilefni af vetrarþingi Framtiðarlandsins „Vestfirðir á teikniborðinu“ biður Framtíðarlandið alla sem áhuga hafa á atvinnumálum á Vestfjörðum að leggja orð í belg. Allir eru hvattir til að mæta á þingið, en fyrir þá sem ekki komast er tilvalið að senda hugmyndaskot á teikniborðið ...

Orð eru til alls fyrst. Áður en nýsköpun verður til í verki þarf að móta hugmyndir í orðum.

Ertu skapandi týpa – hugsanlega atvinnuskapandi? Lúrir þú á nýjum hugmyndum um atvinnu- og menningarlíf á Vestfjörðum eða hafa þér dottið í hug tilbrigði við gömul og góð stef?

Láttu í þér heyra. Viðraðu hugmyndirnar.

Vestfirðingar: viðrið hugmyndir ykkar um framtíð heimahagana.
Sendið þær á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Hver veit nema þaðan komist þær á teikniborðið!
Share/Save/Bookmark