Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði

Skrifað af Framtíðarlandinu 19. febrúar 2008

Reykjanes: Suðupottur tækifæranna

Laugardaginn 23. febrúar næstkomandi efnir Framtíðarlandið til Reykjanesþings, „Reykjanes: Suðupottur tækifæra“, á veitingastaðnum Ránni í Reykjanesbæ. Þar verður stefnt saman hugmyndaríku fólki úr atvinnulífi, menningu og nýsköpun sem á það sameiginlegt að láta sig atvinnumál og framtíð svæðisins varða.


Á Reykjanesþingi verða fjölbreytt framsöguerindi eins og sjá má af dagskrá þingsins hér að neðan en meðal þátttakenda eru frumkvöðlar af Suðurnesjum, listafólk, atvinnurekendur, stjórnmálamenn, skólafólk og athafnamenn. Framtíðarlandið vonast til þess að niðurstöður þingsins geti orðið ómetanlegt framlag til áframhaldandi, uppbyggilegrar umræðu um nýsköpun í atvinnulífi, menningu og búsetu á Reykjanesi.

Dagskrá Reykjanesþings

Staður: Veitingastaðurinn Ráin · Hafnargötu 19 · 230 Keflavík
Dagsetning: Laugardagur 23. febrúar
Þingstjóri: Irma Erlingsdóttir, formaður Framtíðarlandsins

10.00 Þingsetning

Skapandi samfélag
10.20 Hjálmar Árnason, Keilir – Atlantic Center of Excellence:
Herstöð breytt í þekkingarþorp
10.45 Hallur Helgason, kvikmyndaframleiðandi:
Kvikmyndaver á Keflavíkurflugvelli
11.10 Ragnheiður Eiríksdóttir, tónlistarmaður:
Menning á Vellinum
11.35 Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri og einn stofnanda ORF Líftækni:
ORF Líftækni – Græn smiðja

12.00 Hádegishressing. Léttar veitingar verða til sölu og kaffi í boði Kaffitárs

Árið 2020: Frítími, fjármál og búseta.
13.00 Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar:
Reykjanes – valkostur við höfuðborgarsvæðið
13.25 Reynir Ingibjartsson, stjórnarmaður í Reykjanesfólkvangi:
Eldfjallagarður á Reykjanesi – ný tækifæri í ferðamennsku og útivist
13.50 Anna Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Bláa lónsins:
Bláa lónið – stöðug uppspretta nýrra tækifæra
14.15 Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco – Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar:
Reykjanes – miðpunktur alheimsins

14.40 Kaffi í boði Kaffitárs

15.00 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir stýrir pallborðsumræðum:
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, doktorsnemi í heimspeki við Háskóla Íslands
Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum
Magnús Ingi Óskarsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Calidris
Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar

16.00 Þingslit

Dagskrána má finna á öðru formi hér.


Nánari upplýsingar fást hjá Gunnari Sigvaldasyni, framkvæmdastjóra Framtíðarlandsins, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , sími 8943044
Share/Save/Bookmark