Málþing - Vetrarþing á Vestfjörðum
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 30. október 2007
Í þröngum fjörðum Vestfjarðakjálkans hafa Íslendingar í hundruð ára lifað í sambýli við myrkur, einangrun og óútreiknanleg náttúruöfl.
Í gegnum þá sögu hafa Vestfirðingar tileinkað sér atgervi, ósérhlífni og þor sem á sér fáa líka. Þessir eiginleikar sjást hvergi skýrar en í öflugu nýsköpunarstarfi í atvinnumálum Vestfjarða.
Í byrjun nóvember efnir Framtíðarlandið til Vetrarþings undir yfirskriftinni „Vestfirðir á teikniborðinu“ þar sem sest verður á rökstóla um stöðu nýsköpunar á Vestfjörðum. Á þinginu mun Framtíðarlandið leiða saman sérfræðinga á sviði nýsköpunar og fremstu eldhuga vestfirsks atvinnulífs.
Um er að ræða tímamótaviðburð fyrir alla sem láta sig vestfirsk atvinnumál varða. Þingið fer fram í Edinborgarhúsinu laugardaginn 10. nóvember, milli 9 og 17. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn, en þátttakendur skulu tilkynna komu sína á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Vestfirðir á teikniborðinu
Vetrarþing Framtíðarlandsins
Edinborgarhúsinu, Ísafirði
Laugardaginn 10. nóvember
Þingstjóri er Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir
9:00 Þingstjóri setur þingið
Morgunþing: Nýsköpun í verki
9:10 Efnahagsleg velferð borga og bæja | Sigmundur Davíð Gunnlaugsson opnar morgunþingið með erindi
9:35 Sjóstöng í Sókn | Elías Guðmundsson fjallar um sjóstangveiði á Vestfjörðum
9:55 Er eithvað á fólkinu að græða? | Helga Vala Helgadóttir ræðir um menningar- og atvinnulíf á Vestfjörðum
10:20 Kaffihlé
Morgunþing: Nýsköpun í verki frh.
10:40 Kyngikraftur Náttúrunnar | Aðalbjörg Þorsteinsdóttir flytur erindi um Villimey ehf.
11:05 Strandagaldur | Sigurður Atlason fer yfir sögu Galdrasýningar á Ströndum og framtíðarsýn.
11:30 Sigmundur Davíð tekur fyrirlestra saman og stjórnar umræðum
12:15 Hádegisverður
13:00 Tónlistaratriði | Tríó Kristjáns Hannessonar, Hrólfur Vagnsson og Haukur Vagnsson
13:30 Viðburðir í Ísafjarðarbæ og ímynd bæjarins í máli og myndum | Rúnar Óli Karlsson
13:45 Framtíðarsýn í heimabyggð | Steinþór Bragason
14:10 Ímynd og ásýnd Vestfjarða | Sverrir Björnsson hjá Hvíta húsinu
Kl. 14:35 - Kaffihlé
Eftirmiðdagspallborð: Auðlind sérstöðunnar
15:00 Björg Eva Erlendsdóttir opnar eftirmiðdagsþingið og stýrir pallborði:
* Peter Weiss | Háskólasetur Vestfjarða – Ísafirði
* Alda Davíðsdóttir | Sjóræningjahúsið – Patreksfirði
* Guðmundur Valgeir Magnússon | Kalkþörungaverksmiðjunni – Bíldudal
* Harpa Grímsdóttir | Veðurstofu Íslands – Snjóflóðasetur Ísafirði
* Arthúr Bogason | Félag smábátaeigenda
16:00 Lokaorð | Ólafur Sveinn Jóhannesson
16:30 Þingstjóri tekur þingið saman og slítur því
Kvöldverður hefst klukkan 19:30 á veitingastaðnum Við Pollinn á Hótel Ísafirði. Matseðill er svohljóðandi:
* Steiktur saltfiskur á seljurótarmauki með tómatsultu
* Léttsteiktar nautalundir með kartöflupressu og madeiragljáa
* Jarðarberja- og vanillufrauð með pistasíuís
* Te eða kaffi
Kvöldverðartilboð hljóðar upp á 5.100 á mann, og tilkynna skal um þátttöku á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Framtíðarlandið hvetur gesti til að nýta sér fjölbreytta gistiþjónustu á Vestfjörðum, sem lesa má um á ferðaþjónustuvefnum Westfjords.is en Hótel Ísafjörður býður ráðstefnugestum auk þess sérstakt tilboð.
Í þröngum fjörðum Vestfjarðakjálkans hafa Íslendingar í hundruð ára lifað í sambýli við myrkur, einangrun og óútreiknanleg náttúruöfl.
Í gegnum þá sögu hafa Vestfirðingar tileinkað sér atgervi, ósérhlífni og þor sem á sér fáa líka. Þessir eiginleikar sjást hvergi skýrar en í öflugu nýsköpunarstarfi í atvinnumálum Vestfjarða.Í byrjun nóvember efnir Framtíðarlandið til Vetrarþings undir yfirskriftinni „Vestfirðir á teikniborðinu“ þar sem sest verður á rökstóla um stöðu nýsköpunar á Vestfjörðum. Á þinginu mun Framtíðarlandið leiða saman sérfræðinga á sviði nýsköpunar og fremstu eldhuga vestfirsks atvinnulífs.