Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 24. febrúar 2008

Vestfirðir á teikniborðinu
- kynningarfundur um samantekt af vetrarþingi Framtíðarlandsins

Laugardaginn 10. nóvember 2007 stóð Framtíðarlandið fyrir vetrarþingi á Vestfjörðum undir yfirskriftinni „Vestfirðir á teikniborðinu“. Tilgangur þingsins var að leiða saman fólk með reynslu af nýsköpun á svæðinu til að ræða framtíðarhorfur. Tilefnið var einhæf umræða um atvinnumál á Vestfjörðum sem farin var að bergmála þá póla sem mynduðust í kringum virkjanaframkvæmdir og stóriðjuuppbyggingu á Austurlandi á sínum tíma.

Næstkomandi miðvikudag efnir Framtíðarlandið til kynningar á samantekt sem unnin hefur verið í kjölfar þingsins. Í inngangi samantektarinnar eru helstu niðurstöður og lærdómar sem draga má af þinginu teknir saman.

Samantektin er aðgengileg hér.

Samhliða þinginu var almenningi og þátttakendum boðið að leggja fram hugmyndir um atvinnusköpun á Vestfjörðum sem settar voru á „teikniborðið“. Tillögurnar sem bárust voru margar og góðar og hefur Framtíðarlandið lagt þær undir mat sérfræðinga. Seinni hluti samantektarinnar er helguð þessum hugmyndum og úrvinnslu þeirra.

Á kynningarfundinum mun Össur Skarphéðinsson, iðnarráðherra, bregst við samantektinni auk þess sem sérfræðingar ræða um hana í víðara samhengi við atvinnumál og byggðastefnu.

Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 08:30 og eru fjölmiðlamenn boðnir sérstaklega velkomnir. Samantekin verður send fjölmiðlum að kvöldi mánudagsins 25. febrúar.

Staður: Norræna húsið
Tími: Miðvikudagur 27. febrúar kl. 08:30-10:00

Dagskrá:
· Irma Erlingsdóttir, formaður Framtíðarlandsins, segir frá aðdraganda vetrarþingsins og reifar efni samantektarinnar
· Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, bregst við efni samantektarinnar.

Í pallborði sitja:
· Sigurður Jóhannesson, sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
· Berglind Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Impru

Ólafur Sveinn Jóhannesson, aðalskipuleggjandi vetrarþingsins, stýrir fundi
Share/Save/Bookmark