Grænum fulltrúum flokkanna afhent blóm
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 22. mars 2007
Formönnum Samfylkingar og Vg auk umhverfisráðherra afhent blóm
Formönnum Samfylkingar og Vg auk umhverfisráðherra afhent blóm
20 af 63 þingmönnum þjóðarinnar hafa lýst stuðningi við Sáttmála um framtíð Íslands og þar með gerst grænir. María Ellingsen og Rögnvaldur J. Sæmundsson úr stjórn Framtíðarlandsins afhentu í dag þeim Steingrími J.Sigfússyni formanni Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur formanni Samfylkingarinnar blóm með heillaóskum, en þau hafa bæði undirritað sáttmálann. Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra voru send blóm og heillaóskir.

Frá vinstri: Rögnvaldur J. Sæmundsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steingrímur J. Sigfússon, María Ellingsen
