Hádegisfundur í Háskólabíó
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 21. mars 2007
Er Framtíðarlandið þitt grænt eða grátt?
Fyrir nokkrum dögum hrinti Framtíðarlandið af stokkunum Sáttmála um framtíð Íslands og hafa nú vel á fimmta þúsund Íslendinga skrifað undir.
En um hvað snýst þessi sáttmáli, og hvaða ástæðu hefur þú til að undirrita hann?
Framtíðarlandið býður háskólanemum á opinn hádegisfund þar sem fólk úr stjórn þess kynnir sáttmálann og félagið sjálft. Boðið verður uppá umræður að framsögum loknum.
* Andri Snær Magnason, rithöfundur
* Rögnvaldur J. Sæmundsson, lektor í frumkvöðlafræði við Háskólann í Reykjavík
* Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands
Fundarstjóri verður Garðar Stefánsson, varaformaður Stúdentaráðs
Staður: Stofa H-3 í Háskólabíó
Tími: Fimmtudagur 22. mars, 12:15-13:00
Lesið um sáttmálann og skrifið undir hann á slóðinni
http://framtidarlandid.is/sattmali
Kveðja,
Framtíðarlandið
