Framtíðarsáttmálinn sem þrýstiafl
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 3. apríl 2007
Tæplega níu þúsund Íslendingar hafa nú gerst opinberir stuðningsmenn Sáttmála um framtíð Íslands sem ýtt var úr vör þann 18. mars síðastliðinn með stuðningi hóps þjóðþekktra Íslendinga. Fjöldi undirskrifta og skelegg ummæli þúsunda Íslendinga sem skoða má á vefsíðu sáttmálans eru órækt vitni um andstöðu meðal þjóðarinnar við óheft framhald stóriðju og virkjana.
Framtíðarlandið leggur áherslu á að vera þverpólitískt þrýstiafl sem hvetur ráðamenn til góðra verka, hvar í flokki sem þeir standa, enda eru umhverfissjónarmið í eðli sínu þverpólitísk. Leitað var sérstaklega eftir stuðningi þingmanna og frambjóðenda við Sáttmála um framtíð Íslands. Almenningi gafst færi á að senda staðlað bréf til þingmanna þar sem þeir voru hvattir til að undirrita Sáttmálann, og með undiriskrift sinni gat þingmaðurinn orðið „grænn“ en að öðrum kosti verið „grár“.
Afraksturinn af þessum þrýstingi er þegar mikill. Réttur þriðjungur þingheims, eða 21 af 63 þingmönnum, hefur undirritað sáttmálann. Skipting þeirra eftir þingflokkum er þannig:
Framsóknarflokkur: 1 af 11 þingmönnum er grænn
Frjálslyndi flokkurinn: allir 5 þingmenn eru gráir
Samfylkingin: 15 af 19 þingmönnum eru grænir
Sjálfstæðisflokkurinn: allir 23 þingmenn eru gráir
Vinstrihreyfingin - grænt framboð: allir 5 þingmenn eru grænir
Skoða má græna og gráa þingmenn hér .
Af úrtaki nýrra frambjóðenda til Alþingis sem Framtíðarlandið tók saman eru 18 grænir af 75, eða tæpur fjórðungur. Sjá má græna og gráa frambjóðendur hér .
Á opnum umræðufundi í Hafnarfjarðarleikhúsinu sl. miðvikudag var fulltrúum flokkanna gefinn kostur á að skýra afstöðu sína til Framtíðarsáttmálans, stóriðjuframkvæmda og umhverfismála almennt. Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður stýrði umræðum, en fulltrúar flokkanna í pallboði voru þessir:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar
Illugi Gunnarsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks til Alþingis
Kolbrún Halldórsdóttir, þingkona Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs
Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar
Guðjón Ólafur Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins
Söfnun opinberra stuðningsmanna við Sáttmálann um framtíð Íslands á vefnum og í gengum sms heldur áfram allt til kosninga.
