Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 18. mars 2007

Sáttmála um framtíð Íslands var fylgt úr hlað með glæstum hópi stuðningsmanna, en þar fór fremst í hópi Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.

Hér fyrir neðan má svo sjá lista fyrstu stuðningsmanna og ummæla þeirra.

Image Sigurbjörn Einarsson, biskup

Sigurbjorn„Maður nútímans á erfitt með að skilja, að það sé einhvers virði, sem ekki þarf að kaupa eða klófesta.“


Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og aðstoðarforstjóri Time WarnerOlafurJohann
„Ég styð sáttmálann vegna þess að það er nauðsynlegt fyrir þjóðina að ræða það öfgalaust hvers konar samfélag hún sér fyrir sér í framtíðinni.“

Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi ForsætisráðherraSteingrimur
„Við erum allt of háð einni atvinnugrein, sem þar að auki nýtir náttúruauðlindirnar á mjög vafasaman máta, mengar og spillir.“

Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari
„Ég skrifa undir sáttmála Framtíðarlandsins af því að ég ber hag heildarinnar fyrir bjósti. Allir að þurfa að leggja sitt af mörkum til að
vernda jörðina svo að fjölbreytt líf haldi þar áfram að þrífast. Íslendingar ættu að vera þar í fararbroddi frekar en undanþegnir. Ég ah
skrifa líka undir sáttmálann fyrir sjálfa mig af því að mig langar til að búa í hreinu og fallegu landi. Ég er ekki tilbúin að fórna þeirri ósk fyrir hagnað nokkurs stórfyrirtækis.“

Hrönn Marínósdóttir, framkvæmdastjóri Kvikmyndahátíðarhronnlitil
„Náttúran er mun mikilvægari og verðmætari en stóriðja. Ég vil ekki búa í landi þar sem skammsýni ræður för og ég veit að við getum grætt peninga á annan hátt.“

Guðrún Eva Mínervudóttir, rithöfundurgudruneva
„Ég styð sáttmálann vegna þess að ég vil að land mitt og þjóð eigi bjarta og græna framtíð.“

Jón Eiríkssson, bóndi á Vorsabæ, SkeiðumJonEiriksson
„Náttúra landsins er þjóðinni meira virði en ný álver.“

TryggviGudmundssonTryggvi Guðmundsson, Markaðsráðgjafi og knattspyrnumaður úr FH
„... við erum komin með þrjú álver og þetta er bara komið gott, það er eins og menn kunni sér ekki hóf.“

Steve Christer, arkitektSteve
„Við höfum enga heimild til að nota eða misnota auðlindir landsins fyrir eina kynslóð.“

Vilhjálmur Árnason, heimspekiprófessorVilhjArn
„Ég tel mikilvægt að fara varlega þegar ákvarðanir eru teknar um orkulindir okkar og að skapa þurfi víðtæka og vel ígrundaða sátt meðal landsmanna um nýtingu þeirra.“

Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandiSigurjonSighvats
„Dýrmætasta eign okkar Íslendinga er landið sjálft. Í ljósi gerbreyttrar heimsmyndar, er lífsnauðsynlegt fyrir okkur að staldra við áður en lengra er haldið í virkjana- og orkumálum. Látum víti annarra þjóða verða okkur til varnaðar.“

Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor í eðlisfræðiThorsteinnV
„Stóriðja er ekkert öðru vísi en margt annað í lífinu: Óhóf leiðir til ófarnaðar. Meiri stóriðja er ekki rétta lyfið til að styrkja dreifðar byggðir eða leysa þann vanda sem nú blasir við þeim eða þjóðinni.“

Jesse Ball, rithöfundurJesseBall
„I write to say the following: Iceland is blessed with unknowable good fortune – all the mistakes that have been made the world over in this century and centuries past, mistakes that have ruined nations, polluted beyond repair countless ecosystems, extinguished species – these mistakes have not ruined Iceland, not yet. All you Icelanders, proud of your heritage. What are you proud of? Think clearly and think long. You may have forgotten what is best about Iceland, and having forgotten it, you may have forgotten how and why to protect it. Think clearly or you may leave your children and their children with no pride at all.“

Orri Vésteinsson, fornleifafræðingurOrriVesteinsson
„Það er skammsýni að eyðileggja eina landið við höfum. Það er ekkert vara-land.“

Bjarni Haukur Þórsson, leikari og leikhúsframleiðandiBjarniHaukur
„Össur, Marel, FL Group, Bakkavör, Actavis, álver?“

Einar Örn Benediktsson, tónlistarmaðurEinarOrn
„Ég styð sáttmálann af því að ég er náttúruhaus og bið bara um gott veður.“

Margrét Harðardóttir arkitektMargret
„Það er löngu orðið tímabært að við horfumst í augu við ábyrgðina sem við berum á umhverfinu.“

Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla ÍslandsSigrun
„Náttúran er uppspretta góðs mannlífs. Návist mannsins við óspillta náttúru skapar verðmæti í erilsömu lífi nútíma og framtíðar. Þar styrkjast aðrir strengir í nánum tengslum en þeir sem hljóma í sjónvarpsstofu eða tölvuherbergi.“

Mugison, tónlistarmaðurMugison
„Þetta er flottasti samningur sem ég hef kvittað undir.“

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCPHilmar
„Ég vil búa í landi þar sem arðsemi og samkeppni ráða því hvaða atvinnuvegir byggjast upp, það er ekki svo í dag á meðan stóriðja nýtur ríkisverndaðra sérkjara á kostnað lands og þjóðar. Orkufyrirtæki og stóriðja eiga að greiða raunkostnað fyrir misnotkun á landinu okkar og alþjóðlegum umhverfisskuldbindingum. Ég hvet menn og konur að lesa lögin um Reyðarál frá 2003. Sporin hræða.“

Margrét Vilhjálmsdóttir, leikkonaMargretVilhjalmsdottir
„Stoppum ruglið - Þjóðin stendur á krossgötum tækifæranna -sú leið sem þjóðin velur verður að færa henni líf...“

Sr. Örn Bárður Jónsson, presturOrnBardur
„Ábyrg þjóð í auðugu landi - fyrir augliti Guðs.“

Guðný Halldórsdóttir Laxness, kvikmyndaleikstjóriGudny
„Mér þykir svo vænt um Ísland að ég finn til með því í hvert sinn og það verður fyrir minnsta sári.“

Sr. Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur og prófasturGunnar
„Í sáttmála um framtíð Íslands er kallað á nýjan, skapandi lífsstíl með virðingu fyrir landinu.“

Tryggvi Helgason, læknirTryggviHelgason
„Mér finnst synd, að við séum að gleyma því sem íslendingar, hvers virði landið er.“

Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri FréttablaðsinsSteinunn
„Við getum ekki tekið aftur skaða sem þegar er orðinn en það er raunverulega í okkar valdi að koma í veg fyrir að hann verði enn meiri.“

Guðrún Agnarsdóttir, læknirGudrunAgnars
„Ég vil ekki sitja hjá þegar náttúruverðmætum er fórnað fyrir fleiri virkjanir í þágu stóriðju. Okkur gefast aðrir og betri kostir en álver, virkjum fleira en vatn !“

Ólafur Stefánsson, landsliðsmaður í handknattleikOlafurStef
„Ég vil fjölbreytt og skapandi samfélag á Íslandi, við eigum að virkja hugvit og nýsköpun, ekki festast í einni hugmynd.“

Thor Vilhjálmsson, rithöfundurthor
„Reynumst ekki ættlerar. Glötum ekki arfi afkomenda okkar.“

Hörður Arnarson, forstjóri MarelsHordur
„Ég styð sáttmálann vegna þess að arðsemi virkjanaframkvæmda á Íslandi hefur verið ófullnægjandi. Við eigum takmarkaðar orkulindir sem eingöngu munu verða verðmætari í framtíðinni.“

Þórdís Björnsdóttir, rithöfundurThordis
„Fáir hafa áhuga á að heimsækja paradísarland virkjana þar sem þjóðin reynir að líkja eftir stórum iðnaðarborgum á aumkunarverðan hátt og lætur þannig í ljós eigin vanmáttarkennd með því að eyðileggja og afskræma raunveruleg verðmæti, og breyta staðnum þannig hægt og rólega í illa lyktandi skítastað á hjara veraldar sem á víst að hafa verið fallegur og „mjög sérstakur" í gamla daga, en engan langar lengur að heimsækja eða búa á nema þá helst af illri nauðsyn.“
Share/Save/Bookmark