Íslands-piparkaka Framtíðarlandsins tilnefnd til Lúðursins
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 22. febrúar 2007
Piparkakan sem framleidd var og seld undir merkjum Framtíðarlandsins fyrir síðustu jól hefur verið tilnefnd til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, í flokki almannaheillaauglýsinga.
Heiðurinn af hönnun kökunnar og umbúðanna utan um hana á Rósa Hrund Kristjánsdóttir grafískur hönnuður. Baksturinn annaðist Sigfús Guðfinnsson bakari í Brauðhúsinu í Grímsbæ.
Félagsmenn í Framtíðarlandinu stóðu svo vaktina í pökkun og sölu piparkökunnar, en þau Ósk Vilhjálmsdóttir og Rögnvaldur J. Sæmundsson stjórnarmenn afhentu iðnaðar- og umhverfisráðherra sínum hvora kökuna í desembermánuði.
Rósa Hrund Kristjánsdóttir hönnuður kökunnar er um þessar mundir í fæðingarorlofi en mun á næstu mánuðum snúa aftur til starfa á auglýsingastofunni Hvíta húsinu. Um tilurð kökunnar segir Rósa: „Hugmyndin fæddist út frá enska málshættinum sem margir þekkja, 'þú getur ekki bæði étið kökuna og átt hana'. Mér fannst sú hugsun eiga ótrúlega vel við um það sem hefur verið að gerast á Íslandi í stóriðjumálum og náttúruvernd.“
Yfirskrift Íslands-piparkönnar var „Ísland – land stórkostlega möguleika“.
* Frétt á vef ÍMARK
* Frétt á vef Framtíðarlandsins

