Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði

Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 8 júní 2007

Í morgun færði Bjarni E. Guðleifsson náttúrufræðingur formanni Framtíðarlandsins Maríu Ellingsen fyrsta eintak af bókinni sinni „Úr steinaríkinu“. Bókin er sú þriðja í ritröðinni Náttúruskoðarinn sem Bjarni hefur unnið að undanfarin ár.

bjarnimaria

Við þetta tækifæri las Bjarni úr bókinni og þakkaði Framtíðarlandinu gott starf á fyrsta starfsári þess. María Ellingsen þakkaði Bjarna fyrir sitt framlag til umræðunnar um íslenska náttúru og umhverfisvernd.

Það er bókaútgáfan Hólar sem gefur bókina út. Áður hafa komið út í ritröðinni heftin Úr jurtaríkinu og Úr dýraríkinu. Steinaríkið er eflaust ekki eins skrautlegt og litríkt og hin tvö ríki náttúrunnar, en það er hins vegar lang viðamesti hluti hennar. Ekki er um að ræða kennslubók um steina, heldur er eins og í fyrri heftum um að ræða auðlesinn texta og vangaveltur um ýmsa stóra og smáa þætti úr steinaríkinu, svo sem veður, hús, vélar, raforku, álver, kot, hraun og Tröllaskaga. Einnig eru í kverinu teikningar og ljóð tengd hverju viðfangsefni og í sumum tilvikum einnig töflur og kort.

Höfundurinn, Bjarni E. Guðleifsson (f. 1942), er náttúrufræðingur sem hefur starfað við rannsóknir á plöntum og smádýrum við tilraunastöð Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á Möðruvöllum í Hörgárdal og er búsettur þar. Hann hefur einkum fengist við rannsóknir á kalskemmdum og vetrarþoli plantna en einnig rannsakað áhrif mannlegra athafna á smádýralíf í jarðvegi og gróðri. Hann er nú prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Share/Save/Bookmark