Opinn félagsfundur
Skrifað af Hrund Skarphéðinsdóttur 17. ágúst 2009
Framtíðarlandið og Hugmyndaráðuneytið
Framtíðarlandið og Hugmyndaráðuneytið, halda opinn fund miðvikudagskvöldið 26. ágúst kl 20:00. Fundurinn fer fram í Hugmyndahúsi Háskólanna, Grandagarði 2 (Gengið inn hjá Té & Kaffi).
Tilgangurinn er að kynnast því sem aðrir hópar eru að gera og kanna hvort hægt sé að samnýta kraftana til að koma góðum málum áleiðis í samfélaginu. Framtíðarlandið mun á fundinum kynna sig og sín stefnumál. Kynnt verða þau verkefni sem félagið hefur komið að og það sem eru efst á baugi núna; þ.e. Náttúrkortið, Hver á orðið, Græna hagkerfið og starf atvinnulífs- og orkuhóps. Einnig verður sagt frá samstarfsverkefni grasrótarinnar sem Hugmyndaráðuneytið hefur einnig komið að.
Stjórn Framtíðarlandsins hvetur alla félaga gamla sem nýja til að mæta.