„Undirstaða auðlegðar á Íslandi er vinnuafl þjóðarinnar. Áður meðan við vorum útlend nýlenda, var flutt héðan hvert það lítilræði sem frumstæðir bændur og sjósóknarar sóttu hörðum höndum í skaut lands og sjávar. Lángtímum saman fanst hinni erlendu nýlendustjórn þó varla svara kostnaði að senda íslendíngum aungla og færi til að draga fisk. Öll þjóðin lifði við kjör fángabúðaþræla. Einstökusinnum lét nýlendustjórnin senda híngað skip með hallæriskorn en slíkar sendíngar áttu meira skylt við kristilega góðgerðastarfsemi, og hafa vonandi orðið til þess að afla gefendunum þeirrar vistar í himnaríki sem kristileg góðgerðastarfsemi hefur að takmarki. Eftir alþjóðlegu hagstjórnarlögmáli mun svo enn verða, að meðan útlendíngar ráða vinnuafli manna á Íslandi, þá ráðstafa þeir því sér í hag og sínum fyrirtækjum, þeir reisa einhverjar stassjónir hér og hvar um landið, og þángað hverfa starfandi menn íslenskir til að gerast óvirkir þjóðfélagsþegnar…“ – Halldór Laxness
Ómar Ragnarsson sendi fyrir hönd Framtíðarlandsins umsögn um hugmyndir um Kröfluvirkjun II og jarðvarmavirkjun í Gjástykki til atvinnuveganefndar Alþingis, en nefndin heldur utan um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði.
... MeiraÓmar Ragnarsson sendi fyrir hönd Framtíðarlandsins umsögn um Reykjanesskaga og forsendur rammaáætlunar til atvinnuveganefndar Alþingis, en nefndin heldur utan um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði.
... MeiraÓmar Ragnarsson sendi fyrir hönd Framtíðarlandsins umsögn um Eldvarpavirkjun til atvinnuveganefndar Alþingis, en nefndin heldur utan um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði.
... Meira