Þjóðhátíðarkveðja
Skrifað af Framtíðarlandinu 17. júní 2007

Það var á 17. júní fyrir ári síðan að hópur Íslendinga hittist í samkomuhúsinu Austurbæ. Þessi hópur deildi hugsjón um bjarta framtíð á Íslandi, þar sem raunveruleg lífsgildi, náttúruvernd og fjölbreytt atvinnulíf væru höfð að leiðarljósi.
Þessi hópur taldi þegar ríflega tvö þúsund meðlimi og skapaði hann sér félag sem hlaut nafnið Framtíðarlandið. Upp frá þessum degi hefur Framtíðarlandið starfað af heiðarleika og dugnaði sem þverpólitískt hugmyndaveita og þrýstiafl í þágu markmiða sinna. Af því tilefni sendir
Framtíðarlandið út símskeyti til allra meðlima sinna á sjálfan þjóðhátíðardaginn, næstkomandi sunnudag.
HÁPUNKTAR ÚR STARFSEMI FRAMTÍÐARLANDSINS Á LIÐNU ÁRI:
* Í nóvember 2006 tóku 600 manns þátt í haustþingi þar sem „Ísland á teikniborðinu“ var rætt af leiðtogum og sérfræðingum sem höfðu aðra framtíðarsýn en stóriðjustefnuna.
* Í desember sama ár bökuðu Framtíðarlandsmeðlimir piparköku sem kölluð var „land stórkostlegra möguleika“. Kakan var seld í stóru upplagi, afhent iðnaðar- og umhverfisráðherra og síðar tilnefnd til hönnunarverðlauna Ímark.
* Á nýju ári hefur félagið byggt upp innra starf með málefnahópum. Starf lýðræðishóps og atvinnulífshóps hefur þegar skilað árangri í formi úttekta um stöðu lýðræðis á Íslandi og arðsemi Kárahnjúkavirkjunar.
* Ný vefsíða félagsins opnaði 15. janúar 2007 með nýju útliti og hefur síðan verið reglulega uppfærð. Þar getur nú að líta aragrúa fróðlegra viðtala, skarpra ádeiluskrifa, frétta og upplýsinga.
* Á nýju ári hefur félagið staðið fyrir opnum fyrirlestri, morgunverðarfundum, spjallfundum með félagsmönnum og síðast en ekki síst öflugum félagsfundi þar sem meðlimir tóku sameiginlega ákvörðun á lýðræðislegan hátt um hvort boðið skyldi fram til Alþingis.
* Í marsmánuði hratt Framtíðarlandið úr vör sinni viðamestu aðgerð, „Grátt eða grænt – sáttmáli um framtíð Íslands“. Verndari sáttmálans var Frú Vigdís Finnbogadóttir, og var honum fylgt úr hlaði með glæstum hópi opinberra stuðningsmanna. Þegar þetta er ritað höfðu á tíunda þúsund Íslendinga gerst opinberir stuðningsmenn Sáttmálans, auk þess sem þriðjungur allra þingmanna studdi hann.
* Þann 14. apríl var fyrsti aðalfundur félagsins haldinn, þar sem fráfarandi stjórn var kvödd með virktum og nýr og öflugur hópur tók við keflinu.
Engin samtök geta lifað án meðlima, lifandi fólks sem hlúir að því með sjálfboðavinnu sinni og veitir stuðning, hvatningu og aðhald með félagsaðild sinni.
Það hafa verið Framtíðarlandinu sérstök forréttindi og verðmætt veganesti að vera allt frá upphafi fjöldahreyfing.
Þessi þjóðhátíðarkveðja er tileinkuð félagsmönnum í Framtíðarlandinu.