Ályktun Framtíðarlandsins um samruna Alcoa og Alcan
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni 9. maí 2007
Stjórn Framtíðarlandsins samþykkir á fundi sínum þann 7. maí 2007 svohljóðandi ályktun:
Þann 7. maí birti Mbl.is frétt um yfirtökutilboð Alcoa á Alcan.

Verði af þeirri yfirtöku mun einn aðili kaupa helming allrar raforku sem framleidd er á Íslandi og einungis tvö fyrirtæki verða kaupendur að 80% allrar íslenskrar raforku. Rétt er að benda á að Alcoa vinnur nú að undirbúningi álvers á Húsavík, sem þá yrði þriðja álver fyrirtækisins á Íslandi. Framtíðarlandið telur augljóst að alvarleg hætta sé á því að sérhagsmunir þessa eina aðila og áliðnaðarins sem slíks ráði ferðinni fremur en þjóðarhagsmunir enda samningsstaða fyrirtækis í þessari stöðu einstök.
Stóriðjustefnan lifir góðu lífi enda unnið af krafti að stórfelldri nýtingu orkuauðlinda landsins til álvera á næstu árum, í Helguvík, Húsavík, Þorlákshöfn auk þess sem enn virðist leitað leiða til að stækka ÍSAL. Framangreind frétt undirstrikar hve varasöm þessi stefna er. Íslendingar glímdu um áratugaskeið við einhæfa uppbyggingu atvinnulífs og þekkja vel hættuna af því að setja öll eggin í sömu körfuna.
Röksemdir um að halda orkuverði leyndu eru fallin um sjálf sig þar sem Alcoa kemur nú til með að hafa beinan aðgang að samningum sem gerðir voru við Alcan. Það er tímabært að stjórnvöld og fjölmiðlar ræði hversu mikil völd eins fyrirtækis eru æskileg á Íslandi og hvar mörkin liggi.
Ný tækifæri á sviði ferðaþjónustu, hátækni, fjármálastarfsemi og mörgum öðrum greinum hafa orðið til á tiltölulega stuttum tíma. Til þess þurfti ekki handafl stjórnmálamanna eða sérstakar fyrirgreiðslur. Athafnafrelsi og stöðugleiki stuðlar að því að frumkvæði, þekking og sköpunarkraftur fólksins sjálfs fái notið sín. Stjórnvöldum ber að virkja þann mannauð sem í þjóðinni býr. Stóriðjustefnan þrengir að vaxtarskilyrðum annarra atvinnugreina og stefnir í voða fjölmörgum tækifærum til framtíðarvaxtar.
Vert er að benda á að samkvæmt nýrri Gallup könnun sem Framtíðarlandið hefur látið gera telur meirihluti þjóðarinnar (59% þeirra sem tóku afstöðu) að stóriðja sé ekki forsenda hagvaxtar í framtíðinni.
Beinir félagið eindregnum tilmælum til stjórnvalda um að leita allra leiða sem unnt er til að koma í veg fyrir sameiningu álvera á Íslandi og slá á frest frekari stóriðju- og virkjunarframkvæmdum.
Stjórn Framtíðarlandsins