Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði
Skrifað af Ólafi Sveini 2. september 2008

Stjórn Framtíðarlandsins sendi frá sé eftirfarandi ályktun er varðar tillögur að Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði.

Vestfirðingar búa við mesta óöryggi raforkuflutninga hér á landi og hafa heimili og fyrirtæki mátt þola þann skort mun lengur en lög gera ráð fyrir. Félagið fagnar öllum úrbótum er hleypa frekari stoðum undir sjálfbærra og samkeppnishæfara samfélag í fjórðungnum. Það er þó mat stjórnar að bygging Hvalárvirkjunar muni litlu breyta um það ástand sem ríkir á Vestfjörðum við raforkuflutning.

Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti, ( sjá fyrirlestur sem fluttur var á málþingi FSV á Bíldudal 2007 – hér), eru það flutningslínur á svæðinu sem þarf helst að endurnýja svo rekstrar öryggi raforku verði tryggt. Einnig má telja að skynsamlegra væri að leita frekari húshitunar kosta í jarðavarma, þar sem stór hluti húshitunar er fenginn með raforku, þannig mætti létta miklu álagi af raforkukerfinu og endurheimta orku fyrir nýja notendur.
Share/Save/Bookmark