Framtíðarlandið skrifar Al Gore
Skrifað af Framtíðarlandinu 08. apríl 2008
Stjórn Framtíðarlandsins hefur skrifað Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og handhafa friðarverðlauna Nóbels, opið bréf vegna heimsóknar hans til landsins. Hann fékk bréfið í hendur við komu sína til landsins, sl. mánudagkvöld.
Stjórn Framtíðarlandsins fagnar komu Al Gore til landsins og þakkar honum lofsvert framtak hans við að fræða almenning um loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra.
Með bréfinu vill félagið benda Gore á þá staðreynd að á síðustu árum hafa álfyrirtæki eins og Rio Tinto Alcan, Alcoa og Century Aluminum beitt miklum þrýstingi til að fá ódýra raforku til framleiðslu sinnar á Íslandi. Félagið bendir einnig á að orka fengin með beislun jökuláa er hvorki sjálfbær né endunýjanleg auðlind þar sem uppistöðulón fyllast af leir á tiltölulega skömmum tíma. Einnig er ekki að fullu ljóst hver langtímaáhrif jarðhitavinnslu hafa á vinnslugetu háhitasvæða og getur hún því ekki talist sjálfbær. „Græn orka" á Íslandi hefur að auki verið notuð til að réttlæta hið svokallaða „íslenska ákvæði" í Kyoto samningnum, þ.e. að Íslendingar fái auknar losunarheimildir koltvíoxíðs fyrir stóriðju. Er það mat stjórnar Framtíðarlandsins að þetta hafi hindrað alvarlegar umræður um loftslagsmál á Íslandi. Ennfremur hafi það komið inn þeirri ranghugmynd að Íslendingar þurfi ekki að axla ábyrgð í loftslagsmálum með því að draga almennt úr notkun jarðefnaeldsneytis.
Hér má sækja bréfið (1 MB)