Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði

Skrifað af Framtíðarlandinu 20. desember 2007

Óábyrgt gaspur um olíuhreinsistöð er vantraustsyfirlýsing á sérkenni vestfirsks atvinnulífs


Í tilefni af fréttum síðustu daga um að forkönnun Fjórðungssambands Vestfjarða hafi aukið líkur á að olíuhreinsistöð rísi á Vestfjörðum vill Framtíðarlandið koma eftirfarandi á framfæri:
Í framtíðaráætlunum um atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum er það engum til framdráttar að draga upp tálmyndir af iðnaðarstarfsemi

sem allt er á huldu um hvort forsendur séu fyrir á Vestfjörðum eða í íslensku samfélagi yfirleitt, hvort sem horft er til arðsemi eða umhverfis. Slíkt fjölmiðlagaspur er vantraustsyfirlýsing á sérkenni vestfirsks atvinnulífs: sköpunargleði og sjálfsbjargarviðleitni.

Framtíðarlandið efndi í nóvember til vetrarþings í Edinborgarhúsinu á Ísafirði undir yfirskriftinni „Vestfirðir á teikniborðinu“. Á þinginu kom glögglega í ljós að sóknarfæri vestfirsks atvinnulífs eru margvísleg og liggja einkum í nýtingu þeirra auðlinda sem hendi eru næstar á Vestfjarðakjálkanum: náttúru og mannauði.

Geysimikil uppbygging hefur átt sér stað í ferðaþjónustu á Vestfjörðum síðustu áratugi en hún stendur og fellur með ímynd fjarðanna sem ósnortinnar náttúruperlu þar sem mengun er með minna móti. Frumkvöðlar hafa að sama skapi nýtt sér gjöfula náttúruna með fiskeldi, jurtatínslu og þörungarækt, auk hefðbundins landbúnaðar og fiskvinnslu. Þá er ótalið öflugt starf á sviði menningar- og menntamála, en á því sviði hérlendis spretta nú margar frjóustu hugmyndirnar fram á Vestfjörðum.

Framtíðarlandið vísar þeim áherslum í atvinnumálum á bug sem þrengja kosti Vestfirðinga til nýtingar á styrkleikum sínum, í skiptum fyrir einhæfar og mengandi frumframleiðslugreinar sem rýra svæðið og sérstöðu þess.
Ólíuhreinsunarstöð þyrfti um 500 starfsmenn. Atvinnulífið á Vestfjörðum hefur áður verið háð einni atvinnugrein, sjávarútvegi. Það er mun skynsamlegra fyrir Vestfiðinga að stuðla að fjölbreytni í atvinnugreinum og bjóða íbúum svæðisins upp á valkosti í stað eins stórs vinnustaðar.

Framtíðarlandið hvetur til víðsýni í umræðu um atvinnumál á Vestfjörðum og bendir á að í skýrslu Vestfjarðanefndar ríkisstjórnarinnar sem kunngerð var í apríl á þessu ári komu fram margar góðar hugmyndir. Það er miður að niðurstaða þeirrar skýrslu hefur frá upphafi setið í skugganum af óraunhæfum og ómótuðum hugmyndum um olíuhreinsistöð.

Framtíðarlandið hvetur til uppbyggilegs samráðs við starfandi frumkvöðla á Vestfjörðum, frekar en að horft sé til utanaðkomandi töfralausna. Reynslan af vetrarþinginu „Vestfirðir á teikniborðinu“ gefur að mati Framtíðarlandsins fulla ástæðu til bjartsýni og jákvæðni þegar horft er til þessa magnaða svæðis. Niðurstöður þingsins, umræður og hugmyndavinna sem þar fór fram verða kynntar nánar í ársbyrjun 2008.
Share/Save/Bookmark