Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði
Skrifað af Stjórn Framtíðarlandsins 28. September 2007

Árósasamningurinn er alþjóðlegur samningur sem tryggir að almenningur og félagasamtök sem starfa að umhverfismálum eigi lögvarða hagsmuni þegar teknar eru ákvarðanir sem hafa áhrif á umhverfið.

Af þeim fjörtíu löndum sem skrifað hafa undir hann eiga aðeins þrjú enn eftir að fullgilda hann, þar á meðal Ísland. Ef íslensk stjórnvöld hefðu fullgilt Árósamninginn má fullyrða að deilurnar um Kárahnjúkavirkjun hefðu tekið á sig aðra mynd.

Ljóst er af nýlegum dómum Hæstaréttar að breyta þarf íslenskum lögum til að tryggja að félög og félagasamtök sem starfa að umhverfis- og náttúruvernd geti gætt hagsmuna almennings. Taki samningurinn gildi hér má búast við því að mun auðveldara verði að ná ásættanlegu jafnvægi milli almannahags og sérhagsmuna.

Umhverfisráðherra hefur lýst yfir vilja til að fullgilda Árósasamninginn á kjörtímabilinu, en skýrt er kveðið um það markmið í umhverfisstefnu Samfylkingarinnar, Fagra Ísland.

Í stefnuyfirlýsingu sinni einsetur ríkisstjórnin sér að Ísland verði í fararbroddi þjóða heims í umhverfismálum. Það verður trauðla meðan Ísland þráast eitt örfárra ríkja Evrópu við að fullgilda grundvallarsáttmála heimshlutans um réttindi almennings á sviði umhverfisins.

Á opnum félagsfundi Framtíðarlandsins þann 27. september 2007 þar sem Árósasamningurinn var til umfjöllunar var samþykkt að beina tilmælum til stjórnvalda um að fullgilda samninginn og færa í íslenskan rétt hið fyrsta. Beinir félagið eindregnum tilmælum til utanríkisráðherra að leggja Árósarsamninginn fyrir Alþingi til fullgildingar sem fyrst.

Ennfremur hvetur Framtíðarlandið utanríkisráðherra til þess að vinna að því að tilskipun 03/35/EB sem varðar Árósarsamninginn verði tekin upp sem hluti af EES.
Share/Save/Bookmark