Hafa samband
gb
Framtíðarlandið
Borði

Skrifað af Hrund Skarphéðinsdóttur 17. nóvember 2009

Yfirlýsing umhverfis- og náttúruverndarsamtaka

Neðangreind samtök senda hér eftirfarandi yfirlýsingu

Eftirtalin samtök lýsa vanþóknun á ómálefnalegri auglýsingaherferð fyrirtækja á Suðurnesjum gegn ákvörðun umhverfisráðherra um Suðvesturlínur.

Nánar...

 
Skrifað af Framtíðarlandinu 21. október 2009

Talsmenn Samtaka atvinnulífsins eru meðal þeirra sem hæst hafa kallað á uppbyggingu stóriðju. Þeir virðast aðeins sjá eina atvinnugrein, þó svo þeir eigi að kallast talsmenn alls atvinnulífsins hér á landi. Þeim er ómögulegt að sjá nýja möguleika í stöðunni eða draga lærdóma af uppbyggingu nýrra útflutningsfyrirtækja svo sem á sviði hugbúnaðar, tölvuleikja og sjónvarpsþátta (Latibær) sem hafa ekki verið gæluverkefni stjórnmálamanna.

Nánar...

 
Skrifað af Sigurði Jóhannessyni og Hrund Skarphéðinsdóttur, 13. mars 2009

Ríkisstyrkir til stóriðjuframkvæmda

Álver í Helguvík er hannað til framleiðslu á allt að 360.000 tonnum af áli á ári,  en áætlað er að byggja það í fjórum 90.000 tonna áföngum.  Ráðgert er að álbræðsla hefjist í fyrsta áfanga árið 2011. Áætlað er að fullbúið álver og virkjanir fyrir það kosti um 195 milljarða króna .

Nánar...

 

Skrifað af Framtíðarlandinu 20. desember 2007

Óábyrgt gaspur um olíuhreinsistöð er vantraustsyfirlýsing á sérkenni vestfirsks atvinnulífs


Í tilefni af fréttum síðustu daga um að forkönnun Fjórðungssambands Vestfjarða hafi aukið líkur á að olíuhreinsistöð rísi á Vestfjörðum vill Framtíðarlandið koma eftirfarandi á framfæri:
Í framtíðaráætlunum um atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum er það engum til framdráttar að draga upp tálmyndir af iðnaðarstarfsemi

Nánar...